Er þetta gluggaveður?

Sólin skín inn um gluggann, en hvað segir mælirinn? Gluggaveður sýnir nýjustu mælingar frá næstu veðurstöð og spá Veðurstofu Íslands fyrir næstu klukkustundir og daga.

Væntanlegt á App StoreFyrir iPhone, iPad og Apple Watch, á íslensku og ensku.

Gluggaveður á iPhone: 13 °C og skýjað á Egilsstaðaflugvelli, spá fyrir næstu klukkustundir og textaspá fyrir Austurland að Glettingi.

Næstu tímar og dagar

Klukkustundaspá, tíu daga spá og textaspá Veðurstofunnar fyrir landshlutann. Pikkaðu á dag til að sjá hita, vind og úrkomu dagsins á grafi.

Strjúktu á milli næstu stöðvar og uppáhaldsstöðva. Himinninn á bak við spána fylgir veðrinu á stöðinni og tíma dags.

Tíu daga spá í Gluggaveðri með grafi yfir hita, vind og úrkomu föstudagsins.

Landið allt á einu korti

Nýjustu mælingar frá veðurstöðvum um allt land, og spákort fyrir vind, úrkomu og hita. Tímalínan spilar spána áfram klukkustund fyrir klukkustund.

Spákortin byggjast á HARMONIE-líkani Dönsku veðurstofunnar (DMI).

Kort Gluggaveðurs með vindspá yfir Íslandi og vindhraða á veðurstöðvum.

Líka á heimaskjánum og úlnliðnum

Græjur sýna veðrið þar sem þú ert, og sú stærsta sýnir textaspána líka. Á Apple Watch raðast spá næstu tólf klukkustunda hringinn í kringum skífuna.

Tilkynningar geta látið þig vita af viðvörunum, marktæku veðri og norðurljósum, og sent daglega spá á þeim tíma sem þú velur. Slökkt er á þeim öllum þar til þú kveikir á þeim.

Miðlungsstór græja: 8 °C og alskýjað í Reykjavík, með spá fyrir næstu klukkustundir og daga.Lítil græja: 8 °C og alskýjað í Reykjavík.
Gluggaveður á Apple Watch: hiti og veður næstu tólf klukkustunda í kringum klukkuskífu.

Norðurljós í kvöld?

Norðurljósaspá Veðurstofunnar fyrir næstu nætur, með upplýsingum um myrkur, tunglfasa og hvenær tunglið rís og sest.

Kveiktu á tilkynningum og Gluggaveður lætur þig vita þegar góðar líkur eru á norðurljósum.

Norðurljósaspá í Gluggaveðri: virkni 2 af 9, sólarlag, myrkur og tunglfasi, og spá fyrir næstu nætur.

Gluggaveður

Væntanlegt á App Store.